Góđa Kvöldiđ!!!!kristín Jóna
Ég gerði tilraun til að fara á djammið í gærkvöldi, ég og óli fórum heim til vinar hans óla og þar var grillað og svona , fékk alveg geðveikislega góð rif með berbieque sósu nammmi slefffff................. svo fengum við okkur nokkra bjóra og svona, en þegar umræðuefnið fór að snúast um tölvuleiki og var búið að gera það í örugglega 2 tíma þá var ég orðin svoldið leið á þessu og ákvað að skella mér heim og bíða eftir Ingunni sem var að koma í bæinn, við vorum að pæla að fara á Players þar sem paparnir og Brimkló voru að spila. Ingunn kom ekki fyrr en einvherntímann eftir 12 og þá fengum við okkur í glas, svo var klukkan orðin meira en 1 og þá nenntum við eiginlega ekki á Players þar sem það lokaði klukkan 3 og það kostaði 2000 kr inn. þannig að v ið sátum bara heima, ég nennti alls ekki í bæinn og var bara orðin þreytt það enda'i svo þannig að Ingunn skellti sér í bæinn en ég fór að sofa
Ég var ss alveg ógislega skemmtileg í gærkvöldi
En í morgun þegar ég vaknaði var ég bara fegin að hafa ekki drukkið meira og verið drulluþunn í morgun!! Við vorum svo bara heima í dag og höfðum það næs, lögðum okkur saman og svona.
Á morgun er pælingin að fara á Eyrarbakka að hitta Möggu ömmu hans óla, vonandi verður gott veður, þá kannski kemur maður við á þingvöllum eða eitthvað.
En núna ætla ég að fara að fá mér popp og horfa á Ghost Wishperer
Ps Til Hamingju með strákinn Karen
KISSKISS
Hann stækkar alltof hratt:)
bleble
ARG!!kristín Jóna
Músin mín tók upp á því síðustu nótt að vakna kl 4 !!!! Ég tók hana uppí til okkar óla ,en hún var ekkert á því að fara að sofa aftur og endaði svo þannig að hún lá þarna grenjandi til klukkan 6 eða svo........Hún er búin að vera erfið í svefni undanfarið.......ég vona bara að þetta sé eitthvað sem gangi yfir, að tennurnar séu bara að pirra hana svona rosalega, ég neita að trúa því að hún ætli að fara að vakna allar nætur núna!!! NEI!! hlakka til þegar þetta tönnsluvesen er búið.Ég dreif mig nú samt í leikfimi klukkan 10 í morgun þrátt fyrir þreytuna, en þetta var bara alls ekki skemmtilegur tími!!! Það var einvher önnur stelpa að kenna í staðinn fyrir venjulega kennarann og sú lét okkur bara gera það saman ALLAN TÍMAN eitthvað pallahopp (alltaf sama rútínan) og ég sá að hinar stelpurnar voru líka svoldið þreyttar á þessu......ég var að spá í að fara bara fyrr úr tíma..........en svoleiðis gerir maður ekki:) svo ég ákvað að vera dugleg og halda áfram.
Þegar ég kom heim sat dúllan mín uppí rúmi með pabba sínum og brosti sínu blíðasta og mundi sko ekkert eftir látunum um nóttina! Ég skellti mér í sturtu heima og svo fengum við Eygló okkur að borða og ótrúlegt en satt þá borðaði hún matinn sinn!!! Við skelltum okkur svo niðrí fífu og keyptum bílstól handa Eygló var flottan dugar þangað til hún verður 12 ára
Fyrir ykkur sem ekki vitið þá ætlum við fjölskyldan að vera heima um versló við óli ætlum kannski aðeins að fá okkur í glas um helgina svo ef þig langar að vera með vertu þá í bandi

Jæja eygló er vöknuð
Verð að þjóta
Litli grallarinn minn sem er búin ađ vera svo erfiđ síđustu daga....kristín Jóna

Hei!!!! Þið voruð greinilega ekki nógu dugleg að krossleggja fingur fyrir góða veðrinu í gær ha!! Allt ykkur að kenna sko!! Ég bara veit ekki hvort ég geti fyrirgefið þetta.......
Allavega óli var í fríi í dag já eða svona eiginlega, hann skrapp aðeins í vinnuna og á meðan fór ég heim til mömmu. Eygló var svo orðin öskrandi þreytt að við fórum heim og eygló fór út í vagn og steinsofnaði. Ég og óli reyndum aðeins að taka til, það tókst alveg bærilega, ég fór svo í smáró og keypti mér buxur......
Eygló er ennþá að þykjast vera matvönd , kvöldmaturinn í kvöld endaði með þvílíkum öskrum og grenji.....hún ætlaði sko ekki að borða meira........hún er ákveðin stelpan.....þegar við förum í skoðun í næstu viku ætlaég að láta vigta hana og sjá hvort þetta hafi einhver áhrif......
Jæja ég farin í háttinn
'
bleble
Sólogsumarkristín Jóna
WELL....... ÞAð var geggjað veður aftur í dag.....Við Eygló ákváðum að fara á pallinn hjá tengdó sólbað.... Þar voru Rakel og vinkona hennar í pottinum en Rakle fór svo og ég og vinkonan urðum bara 2 eftir ég fór bara í fótabað , nennti ekki ofaní og þegar eygló vaknaði fékk hún líka smá fótabað og líkaði vel, þegar Rakel kom aftur kom hún með ýmiskonar góðgæti eins og ís og svona sem við jöpluðum á Óli kom svo þegar hann var búinn að vinna og við fórum heim stuttu eftir það, held ég hafi brunnið aðeins á bakinu:S en allt í góðu samtDóttir mín er að verða sérvitringur.....hún er orðin hrikalega matvönd og í kvöld var ég að reyna að gefa henni graut með brokkoli og ost sem henni hefur alltaf fundist gott.....hún vildi sko ekkert borða , lokaði bara munninum og neitaðiu gjörsamlega að opna munninn, þá sótti ég krukkumat sem ég ætlaði að setja út í grautinn, hélt kannski að hún vildi það frrekar með einvherju góðu bragði, en þegar hún sá krukkuna varð hún mjög æst en ég setti bara mauk út grautinn og fór krukkuna aftur, enn vildi hún ekkert borða......... þá setti ég bara grautinn út í krukkuna.........og viti menn......hún borðaði allt saman....án þess að vera með nokkuð múður!!!! Ég er ekki alveg að skilja hana henni hefur alltaf fundist þetta gott en núna vill hún ekki borða neitt nema úr krukku!!!hún vill ekki einu sinni stappaðan banana......hún er ráðgáta þessi stelpa. En jæja ég set þá bara matinn hennar í krukku heheheh
Og músin mín datt fram úr rúminu áðan........sem betur fer var þykk ábreiða á gólfinu sem hún lenti akkúrat á , en hún grét mikið en ég held samt að henni hafi bara brugðið vegna þess að eftir nokkar mínútur var hún aftur farin að leika sér og brosa...... Maður er alltaf vitur eftir á!!! Núna eigum við eftir að passa okkur miklu meira að skilja hana ALDREI eftir eina í rúminu, en málið var að hún sat á miðjunnni á rúminu og var að leika sér og óli sat við hliðina á rúminu í tölvunni, en hún var bara svo snögg að rúlla sér fram úr.......sem betur fer var ábreiðan undir!!
Jæja ég ætla að koma mér í háttinn
Krossum fingur fyrir gott veður á morgun
*krossleggfingur*
eehhehehheebkristín Jóna
Góða Kvöldið..... Búið að vera æðislegt veður í dag!!
En ég var hinsvegar bara í kringlunni að eyða peningum...alltaf gaman að því!!kristín Jóna
Jæja þá er helgin að verða búin!!
Eygló fór í næturpössun til ömmu sinnar á föstudaginn og við óli fórum út. Við ætluðum út að borða, það var soldið erfitt fyrir okkur að ákveða hvaða stað við ættum að fara á svo við enduðum á að fara á stælinn. Það var líka alveg ágætt!! við fórum svo og keyptum bíómiða á Pirates of the Carabien , Keytpum miðana aðeins fyrirfram en við fæorum þá í millitíðnni og fengum okkur ís. Myndin var svo rosalega góð
. Við fórum í Háskólabíó og mér fannst sætin þarna galli rosalega þröngt allt saman og þegar myndin var á enda var ég orðin eins og gömul kelling....var að drepast í öxlinni og hendinni , hnjánum og rassinum!!! ekkert sérstakelga gaman
Ennnn það lagaðist.
Við sóttum svo Eygló í gær þegar við vorum búin að fara í bónus. Við tókum þá einn stuttan bílasölurúnt og svo fengum við okkur einn góðan göngutúr heiman frá okkur og niðrá tjörn hér í kópavogi. Eygló sofnaði að vísu rétt áður en við komum niður á tjörnina, Svo við óli skemmtum okkur bara tvö við að gefa öndunum, já eða Mávunum, var eitthvað lítið af öndum þarna..........
Ég hafði svo ætlað mér að' vera bara heima um kvöldið en svo um 10 leytið hringdi solla og spurði hvort ég vildi ekki kíkja út svo ég ákvað bara að skella mér með. Eygló vaknaði reyndar aftur um kvöldið svo ég var ekki komin út fyrr en um hálf tólf leytið. Við fórum svo í bæinn og skemmtum okkur vel ég hitti Valgerðir frænku og við spjölluðum heillengi saman, var voðalega skemmtilegt að hitta hana. Ég var svo komin heim um 5 leytið alveg búin á því, vaknaði svo aftur um hálf 9 með Eygló og hún fékk sér morgunmat. Svo er dagurinn í dag bara búinn að fara í ekki neitt, bara leti, skrapp reyndar yfir til mömmu áðan og var bara að koma heim. Ég nenni ekki að elda svo það verður örugglega ekki neitt í kvöld mat í kvöld.....
kristín Jóna
Þetta var MJÖG rólegur dagur í dag..... við skruppum yfir til mömmu um hádegið en hún var síðan ekki heima, þannig að ég nennti ekki að stoppa lengi. Fór þá bara heim og setti eygló út í vagn, hún vaknaði svo aftur um 2 leytið og þá fórum við aftur yfir til mömmu þá voru þær heima, en samt á leiðinni út, aldrei heima þessar kjellingarÞað er orðið Grunnt á Efri tönn hjá EYgló spurning um daga bara held ég..... mér finnst svo spennandi að sjá hvernig fram tennurnar eiga eftir að koma út.....
En jæja þetta er gott
bæbæ
Snilld:)kristín Jóna
Þú veist að það er árið 2006 þegar....1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.
KvartogKveinkristín Jóna
Hmmm.....Það gerðist nú ekki mikið í dag........... fór í leikfimi í morgun og það var frekar fúlt að þegar ég kom heim fattaði ég að við höfðum fengið vitlausan pela til baka
Það var nebnilega þannig að þegar ég kom að sækja Eygló í Pössunina stóð ein konan þarna með pela í hendinni og spurði hvort minn peli væri í töskunni, sem hann var ekki , þá sagði hún bara " Já þá er þetta hennar" og ég fór heim þegar ég tók upp pelann sá ég að túttan á þessum pela var nr 2 en túttan á Eyglóar pela var nr 4 . Frekar fúlt sko, ég var nú ekki að fara að láta hana drekka úr pela sem einhver annar krakki er búinn að drekka úr.........Ég átti aðra túttu nr 2 sme ég hélt hún mundi ekki sætta sig við , því hún þarf að sjúga fastar úr túttu nr 2 en hún sætti sig við þetta, en ég þarf núna að far að kaupa fleiri túttur, og helst langar mér að kaupa nýjan pela kannski óþarfa pjatt í mér, mér finnst bara ekki skemmtilega tilhugsun að nota eitthvað svona sem ókunnugt barn hefur nota...........Nóg um Pelamál......... Eftir hádegi fór ég með mömmu, heiðu og Lilju í IKEA ég keypti ýmsa óþarfa smáhluti eins og dósaopnara og einn bangsa handa Eygló......... Þegar við komum svo heim setti ég Eygló út í vagn og ég fór að taka tilgerði fínt á heimilinu mínu........Langt síðan ég gerði það
En jæja held ég segi þetta gott í bili.............
kristín Jóna
Jæja
Í dag fór ég í smáralindina með Ingunni, við fórum á smá búðarráp, ég þufti að kaupa náttföt á Eygló........ og já ég keypti líka kelmmur![]()
'Eg var svo ekki komin heim fyrr en um hálf 6 leytið og þá skellti ég kjúklingabringum í ofninn sem við átum svo um 7 leytið.
Pabbi átti svo afmæli í dag, ég, óli, systur mínar og Lilja fórum þangað í kvöld , gáfum honum blóm í tilefni dagsins. Það var voða næs að hitta gömlu og spjalla við þau. Svana bauð upp á góðgæti, sem ég át að bestu lyst.En við vorum svo komin heim um hálf 11 leytið og Eygló var alveg búin á því.
EN jæja ég verð að drífa mig í háttinn ef ég ætla að vakna á morgun...........
