PIRR PIRR og aftur PIRRkristín Jóna

   Jæja , mér tókst loksins að baka marengstoppana mína í dagSpazog heppnaðist líka bara svona vel. Ég er alveg ýkt klárYes!. En annars er þetta búið að vera frekar erfiður dagur. Eygló er búin að vera mjög pirruð í dag, byrjaði á því að vakna kl 5 í morgun og vildi ekki sofa meira, sofnaði svo klukkan 7 eftir mikið grenj og þá svaf hún í klukkutíma, þá fórum við fram og fengum okkur morgunmat og hún hélt áfram að grenja svo náði ég að láta hana sofna og hún svaf þá til 11. þegar við vorum svo búnar að koma okkur fram úr, fórum við á varnarliðssöluna, við sáum nú ekkert sem heillaði okkur, var voða mikið af sófum borðum og skápum. Svo við fórum bara aftur og löbbuðum í gegnum elko og þaðan yfir í rúmfó þar sem við keyptum okkur rúmteppi og svona fínt á rúmið   Thumbs Up  og svo fórum við í bónus að versla inn fyrir vikuna, Eygló var grenjandi eiginlega allan tíman í elko þannig að óli þurfti að halda á henni, hún var ekki sátt í bónus heldur. En við náðum að ljúka búðarferðinni og fórum svo beinustu leið heim með Eygló út í vagn, hún svaf nú ekki lengi þar kannski svona 1 og hálfan tíma! Þá skruppum við yfir til mömmu þar sem hún var heldur ekkert voðalega sátt svo við fórum bara heim aftur. Eygló var síðan orðin mjög þreytt um kvöldmatarleytið og sofanði síðan klukkan 8 . Ég vona bara að dagurinn á morgun verði betri annars verð ég að fara að láta athuga eyrun í henni og svona, en ég vona að þetta séu bara tennurnar að pirra hana.

VIð Óli vorum búin að kaupa stöð 2 en vorum ekki búin að fá það  í gang var eitthvað bilað og óli fór upp og talaði við húsvörðinn og ´þá komst hann að því að við náum ekki sambandi útaf öllum stóru blokkunum hér í kring!!!! Ekkert smá pirrandi *URRRRRR*
Jæja það er að byrja einvher mynd í tvinu
bæ í bili





Hreyfing ofl.....kristín Jóna

  Við solla fórum í dag niðrí hreyfingu og skráðum okkur í 8 vikna aðhaldsnámskeið. Mér leist bara vel á þetta þarna hjá þeim, nema kannski það að stelpurnar í afgreiðslunni virtust vita afskaplega lítið um málið, og gátu ekki sagt okkur neitt nema bara af því að við spurðum. Allavega við skráðum okkur og fengum bók sem heitir, Lögmálin 9 um megrun , svo fengum við líka gjafabréf sem við getum notað að 8 vikum liðnum sem dugar í mánuð. Við kíktum líka á barnagæsluna, virtist mjög fínt, ég er samt soldið kvíðin að skilka eygló þarna eftir, en ég ætla samt að prufa.aðstaðan virtist mjög góð í barnagæslunni, mikið pláss, þau eru með barnavagna og göngugrindur fyrir börnin, og svo auðvitað ef eitthvað kemur upp á þá er bara kallað á foreldrana. Þetta verður örugglega alltílæScared 2 En eftir þetta fór ég bara heim, og var bara að gera ekki neitt þangað til óli kom þá fórum við heim til Tengdó því óli var að fara að horfa á fótboltaleik. Síðan fórum við heim og óli eldaði ´svínakótilettur sem voru bara góðar. Svo komu Kjartan og Rannveig í heimsókn , þau eru með lítinn bumbubúa sem kemur í heiminn í september. Eygló var auðvitað í essinu sínu og sýndi listir sínar. Þangað til hún varð svo þreytt að hún sofnaði. Þá var ekki gert meira þann daginn.

Á morgun ætlum við óli að kíkja þarna á einhverja sölu sem ég man ekki hvað heitir, það er verið að selja drasl sem fólk úr hernum hefur skilið eftir, gæti verið að maður finni eitthvað sniðugt. Já og svo á að fara í bónus..............

Og nú hef ég barasta ekkert meira að segja
er farin að fá mér pepsi max
bæææ






Kvöldið!kristín Jóna

  Í dag gerðist nú ekki mikið við Eygló vorum komnar á fætur kl 10 í morgun, við orum svo bara heima og Eygló fór svo útí vagn kl 11.30  eftir það fórum við og sóttum Sollu og Nikolai og við fórum í smáralindina að kíkja á útsölur. Ég fann mér flotta íþrótta skó PUMA á 3000kr ekkert smá ódýrt. og svo keypti ég mér íþróttabuxur líka sem reyndar voru aðeins dýrari. Alltaf gaman að fara í verslunarleiðangur.
Þegar við komum heim eldaði ég svo pítu handa okkur óla og Eygló var í einhverju grenjustuði.
Annars er hún svo dugleg hún er að fatta að fara upp á hnéin og að færa sig áfram til að ná í eitthvað ég er svo MONTIN
Bounce en Eygló sofnaði svo bara rétt  um 8

Á morgun erum ég og solla að fara að skrá okkur í líkamsræktarnámskeið, það verður stuð nú á að taka á því. á morgun ætlum við að fara að skrá okkur og skoða barnagæsluna þarna, annars var habba búin að bjóðast til að taka eygló fyrir mig á meðan hún er í sumarfríi. En Námskeiðið byrjar 3 Júlí.

En jæja nú er að koma helgi, ég elska helgarnar sérstaklega þegar óli er heima. En allavega eigiði góða helgi
Kisskiss




Sjétt..........kristín Jóna

Ég var næstum því búin að læsa mig frammi á stigagangi áðan og Eygló var sofandi út á svölum.... Ég fór fram með ruslið og það var smá gegnumtrekkur því svalahurðin var opin og líka allt opið frammi á gangi og þegar ég sneri mér við sá ég bara hurðina vera að skellast aftur ég rétt náðiað stoppa hana.......fjúff... hvað hefði ég þá gert??? ekki með neinn síma á sokkunum og ég hefði ekki getað farið yfir til mömmu vegna þess að ég hefði ekki skilið Eygló eftir.....jæja maður lærir af reynslunni.....


Ég veit sko alveg hvað ég gerði vitlaust með Marengstoppana í gær....ég setti sko eggjarauðurnar en ekki hvíturnar.......Jájá Hlægjiði bara......Ég reyni aftur bráðum og þá verða þær fullkomnar....Hlæjandi

VIð fórum til Tengdó í gærkvöldi, þar voru allir mjög glaðir að sjá Eygló afturBrosandi og hún fékk voða sætan kjól og United búning, sem bæ ðe vei óli var geðveikt ánægður með!
Ég fékk aftur á móti buxur 2 töskur skó og tvö armbönd frá Rakel, ég er rosalega ánægð með þetta...Habba kann sko alveg að kaupa handa mér dót, alltaf svo fínt sem hún kemur með handa mér!!! Svo fékk óli 2 kvartbuxur og skyrtu.Þau keyptu svo líka kjól handa Lilju sem er alveg eins og sá sem eygló fékk.

Í dag er ég svo eiginlega búin að vera í letinni......þetta er einn af þeim degi........ Eygló vaknaði klukkan 6 og þá gaf ég henni pela af því að mig langaði til að sofa lengur, hún sofnaði aftur og vaknaði svo ekki fyrr en að verða hálf 9 núna eftir hádegi fórum við í smá göngutúr tókum einn soldið stóran hring hérna, Eygló sat auðvitað agalega spennt í kerrunni sinni og blikkaði ekki auga allan tímanGlottandi Svo þegar við komum aftur heim fór hún útí vagn að lúlla sér. Það er alveg merkilegt ,það eru sko búið að vera grafa og allskonar læti hér útí garði, það er verið að laga leikvöllinn, setja ný leiktæki og svona með þartilleiðandi látum og Eygló sefur eins og steinn út á svölum þrátt fyrir þetta, þetta truflar hana ekki neitt, sem er nú bara gott.

ohhhh Mér finnst alltaf svo druslulegt hérna........verð að gera eitthvað í málunum

bæ í bili

JIBBÝ:)kristín Jóna

Við erum að fara til Danmerkur!!! Reyndar ekki fyrr en í endann á Nóvember og bara í eina helgi......verður samt fjör, Tengdó áttu miða til Danmerkur sem þau hættu við að nota og ákváðu að gefa okkur óla þá. Við gistum á flottu hóteli sme ég man ekki hvað heitir, en ég var að skoða myndir af því og það er rosalega flott og húsið er sko 200 ára gamalt!!!Habba Ætlar að vera með Eygló fyrir okkur á meðan. Þetta verður bara gaman, við getum verslað nokkrar jólagjafir og svona. bara verst hvað þetta er stuttur tími.

Ég reyndi að baka Marengstoppa áðan það tókst ekki!!! veit ekki af hverju, ég býst við að ég sé bara ekki með þetta bökunargen í mér. ekki alveg nógu gott. Ég þarf að læra að búa til marengs. samt tókst það bara nokkuð vel þegar ég var að baka fyrir skírnina og habba leiðbeindi mér. Ég hélt sko að ég ætti að geta þetta.....en svo er víst ekki....

Habba og Bjössi og Rakel eru komin frá útlöndum , komu í gærkvöldi. Þau buðu okkur í heimsókn í kvöld, við ætlum þangað svo er óli líka að fara að horfa á fótboltaleik. Ég veit þau eru með einvherjar gjafir til Eygló.....


Ingunn var svo að bjóða okkur óla í afmælið sitt á föstudaginn á players. ég veit ekki hvort við getum farið , var að djamma síðustu helgi og þar síðustu helgi, ég nenni bara ekki meir. ekki það að við gætum sko alveg farið án þess að djamma, en þá þyrftum við að finna pössun og ég tími ekki að setja hana aftur í næturpössun alveg strax aftur.


En jæja það er best að huga aðeins að heimilinu..........


LATERS.......

Ekki byrjar það vel..........kristín Jóna

 Var búin að skrifa svaka ritgerð hérna áðan sem hvarf þegar ég ýtti á vista, SJétt....hvað ég var PIRRUÐ urrrrrrrrrrrrr.......En ég ætla að reyna aftur og muna að gera COPY!!!Dagurinn minn byrjaði ss þannig að ég hellti niður glasi af mixi sem stóð á náttborðinu ,svo ég byrjaði daginn á að þurrka upp fullt af bleytu og auðvitað varð gófið alveg exxtra klístrað, ég nennti nú ekki að fara að skúra klukkan 7 um morguninn svo ég lét það bara bíða, fór frekar og sótti Eygló og við fengum okkur morgunmat, síðan fórum við aftur að kúra uppí rúmiEftir hádegi réðst ég svo á svefnherbergið ,skipti á rúminu og skúraði upp klístrið, Þannig að í kvöld sef ég í hreinum sængurverum, það er alltaf næs.Þegar Eygló vaknaði fórum við út í bónus og keyptum í kvöldmatinn, sem var bæ ðe vei kjötbollur sem heppnuðust vel hjá mérEn Svo hringdi solla og spurði hvort við vildum ekki koma í sund, við Eygló ákváðum að skella okkur  bara en ég þurfti fyrst að fara heim til tengdó að sækja sundbolinn minn sem var ennþá þar síðan um helgina. Það var mjög fínt í sundi , var ekkert að setja Eygló mikið í kaf hún er ekki í æfingu. Svo við vorum bara að svamla um og henni fannst það bara ágætt. Svo erum við bara búnar að vera í rólegheitunum heima.Ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera á morgun, ætli maður verði ekki bara heima þar sem ég á eitthvað takmarkað af peningum, en kannski við drífum okkur bara út í göngutúr.............alltaf gaman af þvíEn jæja nú er að sjá hvort þetta takist hérnaÞangað til næst.........COPY

Ekki byrjar það vel........kristín Jóna

  Var búin að skrifa svaka ritgerð hérna áðan sem hvarf þegar ég ýtti á vista, SJétt....hvað ég var PIRRUÐ urrrrrrrrrrrrr.......En ég ætla að reyna aftur og muna að gera COPY!!!

Dagurinn minn byrjaði ss þannig að ég hellti niður glasi af mixi sem stóð á náttborðinu ,svo ég byrjaði daginn á að þurrka upp fullt af bleytu og auðvitað varð gófið alveg exxtra klístrað, ég nennti nú ekki að fara að skúra klukkan 7 um morguninn svo ég lét það bara bíða, fór frekar og sótti Eygló og við fengum okkur morgunmat, síðan fórum við aftur að kúra uppí rúmi
Eftir hádegi réðst ég svo á svefnherbergið ,skipti á rúminu og skúraði upp klístrið, Þannig að í kvöld sef ég í hreinum sængurverum, það er alltaf næs.Þegar Eygló vaknaði fórum við út í bónus og keyptum í kvöldmatinn, sem var bæ ðe vei kjötbollur sem heppnuðust vel hjá mérWakka WakkaEn Svo hringdi solla og spurði hvort við vildum ekki koma í sund, við Eygló ákváðum að skella okkur  bara en ég þurfti fyrst að fara heim til tengdó að sækja sundbolinn minn sem var ennþá þar síðan um helgina. Það var mjög fínt í sundi , var ekkert að setja Eygló mikið í kaf hún er ekki í æfingu. Svo við vorum bara að svamla um og henni fannst það bara ágætt. Svo erum við bara búnar að vera í rólegheitunum heima.
Ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera á morgun, ætli maður verði ekki bara heima þar sem ég á eitthvað takmarkað af peningum, en kannski við drífum okkur bara út í göngutúr.............alltaf gaman af því
En jæja nú er að sjá hvort þetta takist hérna
Þangað til næst.........
COPY





Hallókristín Jóna

Þetta mun vera nýja bloggið mit!!! Ég veit ég veit.....ég er alltaf að skipta.....en málið er bara það að á blogspot get ég ekki gert undirsíður og svo er líka þessi síða á Íslensku....þó að égskilji nú alveg ensku þá finnst mér miklu betra að nota íslenskuna og ég skil líka allt miklu betur hér....myndaalbúm og alltHlæjandi ég lofa að skipta ekki aftur í bráð........ heheehe

Auglýsing

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Textareitur

Höldum fast í það sem eigum við.
Þrátt fyrir allt, þá höfum við hvort annað.
Já, höldum fast í þennan góða dag,
í það sem þykir okkur best; hvort annað.
Hvort annað.

Könnun

Hvaða þáttur er skemmtilegastur?

Leit

Textareitur

Þú færð bros
frá mér í sérhvert sinn
þú lítur hingað inn,
þú ert meir’ en velkomin hér.
Þú færð mitt bros,
já, það er fyrirséð
og faðmlag fylgir með.
Síðan þegar ferð þú frá mér
þér fylgir bros.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins