kristín Jóna
Eygló vaknaði upp um miðnætti seinustu nótt og sofnaði ekki fyrr en kl 2.30 aftur, þetta er farið að verða pínku pirrandi, núna liggur hún inní rúmi, á að fara að sofa, en hún stendur á grenjinu núna. henni er greinilega eitthvað illa við rúmið sitt í augnablikinu.Öll ráð vel þegin takk
Vinnudagurinn var ágætur, mér finnst ég samt aldrei vera að gera neitt á meðan hinar 2 eru alltaf að breyta einhverju og stússast helling. Mér finnst ég eiginlega bara vera fyrir ef ég reyni að veraeitthvað með. En það er svo sem í góðulagi á meðan er ég að aðstoða, lagatil og setja í þjófavarnir, mjög rólegt bara.
Ég sótti svo Eyglónna mína kl 4 hún var í góðu skapi að vanda.Nýjasta nýtt er það að þegar maður segir við hana "Eygló Syngja" þá byrjað hún "lalalalalalala" voða gaman og klappar svo fyrir sjálfri sér eheheh. svo þegar líður á kvöldið verður hún pirruð og grenjar og grenjar, þá er hún auðvitað baraorðin þreytt, svo það er spurning hvort hún sofi nóg hjá DM égætti að prufa að láta hana leggja sig í kannski klukkustund eftir að hún kemur heim, og sjá hvort það gangi ekki betur. yess ég geri það.
Núna er ég að fara heim til Karenar að spila með henni og ásu. Ég var í einhverju letikasti, og ætlaði ekki að nenna, en svo kemst ása ekki annað kvöld þannig að ég ákvað bara að slá til og far að spila, það verður bara gaman.
Ég þarfsvo að fara að vinna á Sunnudaginn..... og eftir vinnuna förum við Eygló í afmæli til Nikolai.
Eygló er að springa á limminu og ég hef það ekki í mér að láta hana grenja lengur svo ég er þotin.
