loksinsloksinskristín Jóna
Jæja Loksins bloggið komið í lag! Maður er búin að vera eitthvað hálf tómhentur á meðan bloggið lá niðrí!
En hvað ernú búið að ganga á síðan ég skrifaði seinast......hmm....Éger auðvitað búin að vera að vinna og veðrið er búið að vera brjálað! Ég fékk Boðsmiða á starfsmannakvöld hjá Hagkaupum og starfsmannakvöldið fólst í því að í Hagkaup í smáralindinni var allt selt á afslætti frá kl 19.30-22.00. Ég dró mömmu með mér á þetta. Það var soldill mikill troðningur, eins og mátti búast við. Það var 40% afsláttur af öllum fatnaði og ég keypti mér 2 buxur og 1 bol. Mamma keypti sér 1 kápu svo verslaði ég bleyjur og eitthvað svoleiðis, nottla allt með afslætti. Sumir voru alveg með kúfullar körfur að versla fyrir mörg þúsund kr. En við sluppum svo til með ala röðina, það var einhver maður fyrir framan okkur með fulla körfu sem hleypti okkur fram fyrir sig. Svo við þurftum að bíða voða stutt.
Í gærkvöldi þurfti ég sov að fara á eitthvað "nýliðanámskeið" og ég var svoooooooooo ekki að nenna að fara en ég lét mig nú hafa það, það voru mest svona 16 ára krakkar á þessu námkeiði ef ekki yngri! Allavega voru nokkrir strákar þarna sem voru varla búnir í mútum og höguðu sér alveg eins og smákrakkar í barnaskóla að pirra Kennarann! mjög Pirrandi! En leiðbeinandinn var samt mjög fínn, gaman að hlusta á hana. Hún var að segja okkur ýmiskonar þjófasögur eins og td ein sem skeði í smáralindinni þar sem maður með widescreen tv labbaði að einum starfsmanninum voðalega haltrandi og bað hann um að keyra tvið út í bíl fyrir sig. Að sjálfsögðu gerir starfsmaðurinn það , keyrir tvið út í bíl og setur það í skottið og veifar bless, þegar hann kemur aftur inn fattar hann auðvitað að maðurinn hafði auðvtiað ekkert borgað fyrir tvið og haf'ði haft starfsmanninn að algjöru fífli. ótrúlegt! Hún sagði okkur alskonar svona ótrúlegar sögur.
En svo fór ég nú heim og þar voru óli og Eygló sofandi saman uppí rúminu okkar. Ég ákvað nú að færa Eygló yfir í sitt rúm, en NEI þá vaknaði mín bara svona rosalega og sofnaði bara ekkert fyrr en klukkan 3 um nóttina. Við óli vorum orðin sooooldið pirruð.Ég vona bara að þessi nótt veri betri. Ég þarf allavega ekkert að færa hana neitt núna. En hún vaknar samt öruglega einvherntíman í nótt og heimtar að koma uppí.
Ég ætlaði að segja eitthvað meira sniðugt en ég man bara ekki hva það var í augnablikinu!
Ég man allavega það að hann Nikolai á afmæli ídag og óska ég honum og sollu og Hjalta til Hamingju með Daginn.
Við ætlum í afmæli til Hans á Sunnudaginn, ég þarf reyndar að vinna til kl 5 svo ég verð soldið sein. Það verður bara að hafa það.
Núna er ég að pæla í að fara að fá mér popp. namminamm:)
