Aðeins 364 dagar í næsta afmæli :)kristín Jóna

Jæja, þá er frökenin loksins orðin 1s árs!  Það er búið að vera mikið að gera hjá mér þessa viku, Ég er búin að vera í vinnunni alla daga
auðvitað og eftir vinnu er ég búin að vera að þrífa og taka til og baka og svona.

En á sjálfum afmælisdeginum fór ég með Eygló í skoðun áður en ég fór í vinnuna, við áttum tíma kl 8.20 .hún var vigtuð 8860gr og 76 cm hún hefur greinilega tekið einhvern vaxtarkipp því í 10 mánaða skoðun var hún 72,5 cm þannig að hún hefur lengst alveg slatta! En hún fékk sprautu og var ekki sátt við það! Það kom líka læknir til að kíkja í eyrun, hann sá ekkert í eyrunum nema það var soldill mergur.
En jæja Eygló fór svo til DM og ég í vinnuna, ég er búin að vera eitthvað svo ónýt í vinnunni þessa viku, um leið ég ég kem byrja ég að geispa og verð ofur þreyttsvo fæ ég svima og verð mjög þyrst, veit ekki alveg hvað þetta er,en það er alltaf mjög þungt loft þarna inni, held það tengist því, ég þarf bara að vera duglegri við að fara og fá mér frískt loft!  Ég batna svo strax og ég er komin heim.
en já ég fór svo og sótti Eygló hjá DM kl 4 hún hafði fengið kórónu og súkkulaði köku hjá henni, hún var víst hæst ánægð með kökuna og hámaði hana í sig, litli sælgætisgrísinnminnHlæjandi Hún fékk svo 1 pakka þegar hún kom heim fráokkur foreldrunum.Ég fór svo að baka og gera fínt, því fjölskyldan var að koma um kvöldið,ég gerði einhvern voða rétt, sem var góður að gestann sögn (ég borða ekki svona sjálf) Habba kom svo líka með kökku sem var ofsalega góð. En Afmælisveislan heppnaðist mjög vel!
Í morgun gat ég svo mætt á réttum tíma í vinnunaen var samt alveg að leka niður... ég kláraði samtdaginn og þegar ég var búin að sækja Eygló mínafórum við til Karenar í smá heimsókn, Eygló og strákarnir voru soldið að leika sér og það er alltaf jafn mikið fjör í honum Elvari, bara gaman að honumBrosandi Karen var svo góð að lána okkur Bangsaform sem ég ætla að gera afmælisköku úr! Takk KarenKoss EN við fórum svo um 5 leytið og það varsko fljúgandi hálka á götunum. Það munaði engu að ég hefði runnið á staur áður en ég fór inní hringtorg! Hólýmólý Hvað mér brá! Allt í einu réði ég bara ekki við neitt, og bíllinn rann baraHissa En sem betur fer stoppaði hann rétt áður en hann lenti á staurnum. Ég bakaði svo skúffuna áðan ég heldþað hafi heppnast ágætlega!

Á morgun verður svo afmælisveisla nr 2 þá koma vinirnir og börnin þeirra. Ég á ennþá eftir að útrétta svolítið fyrir afmælisveisluna, það verður gert á morgun!

Jæja
þetta er komið gott
Hlakka til ða sjá ykkur á morgun!
bæbæ

Athugasemdir

1
Karen skrifar:
takk fyrir kökurnar í gær, gaman að hittast svona margar með börnin... spurning um að gera þetta oftar??
12. nóvember 2006 klukkan 16:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Textareitur

Höldum fast í það sem eigum við.
Þrátt fyrir allt, þá höfum við hvort annað.
Já, höldum fast í þennan góða dag,
í það sem þykir okkur best; hvort annað.
Hvort annað.

Könnun

Hvaða þáttur er skemmtilegastur?

Leit

Textareitur

Þú færð bros
frá mér í sérhvert sinn
þú lítur hingað inn,
þú ert meir’ en velkomin hér.
Þú færð mitt bros,
já, það er fyrirséð
og faðmlag fylgir með.
Síðan þegar ferð þú frá mér
þér fylgir bros.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins