Hólý mólý:Skristín Jóna
Ég er farin að hafa áhyggjur af því að Eyglóin mín sé með sveppó á kynfærunum
Allavega hjálpar þetta krem sem ég var að bera á hana ekki mikið til, Við fórum þá í apótekið áðan og keyptum annað krem ´heitir Daktakort eða eitthvað.......En þetta eralveg hrikalega ljótt og sérstaklega á einum stað, hún er hreinlega bara að verða skinnlaus
úff þetta hlýtur að vera hrikalega vont, en við förum í skoðun á Fimmtudaginn og þá læt ég lækninn kíkja á þetta. Svo var DM að segja mér að öll börnin hjá henni eru með Niðurganginn svo Eygló er ekki sú eina,ég hélt það nebnilega, var farin að hafa áhyggjur af henni þar sem hún er búin að vera með þetta í nokkra daga, en þetta er þá eitthvað sem er að ganga.
Var að vinna með einni konu í dag sem er yfirmaður yfir einhverju þarna (Svo margir yfirmenn að ég hef ekki lagt það á minnið ennþá hver er yfirmaður yfir hverju) En minn venjulegi yfirmaður var í fríi í dag Svo þessi stjórnaði úlpufærslum og svona. Þessi er nú alveg ágæt, En hún er bara svo æst eitthvað og hvöss að maður verður bara þvílíkt stressaður á aðvinna með henni. Maður hefur það á tilfinningunni að ef maður gerir ekki strax það sem hún biður um þá muni hún bara snappa! Svo segir hún aldrei , viltu eða geturu, bara gerðu þetta og gerðu hitt. Allavega þegar ég var búin að vinna með henni í smástund þá var ég farin að fá stressið í magann og fannst bara virkilega erfitt að vinna með henni.
En ég held nú samt að þetta sé ágæt kona , mér er allavega ekkert illa við hana.
Svo átti ég að mæta á einhvern nýliða fund í kvöld, sem ég var EKKI að nenna að mæta á , ég ætlaði bara að svíkjast undan og segjast hafa gleymt því, En sem betur fer var fundinum frestað þangað til einhverntíman seinna![]()
Þegar ég var ´búin að sækja Eygló í dag fórum við í smáralindina og ég var að reyna að finna eitthvað í afmælisgjöf handa henni, fann nú alveg eitthvað en ég er bara svo óákveðin eitthvað , langar að gefa henni eitthvað sérstakt, en samt eitthvað sem hún hefur gaman að.
Á morgun er DM í fríi frá 8-9 svo Eygló getur komið eftir kl 9 og þá verð ég bara aðeins of sein í vinnuna, það er alltí lagi.
Svo á fimmtudaginn fer Eygló mín í skoðun kl 8.20 þá verð ég líklegast aðeins of sein í vinnuna líka........það er alltílæ
jæja ég ætla ekki að hafaþetta lengra í bili..........

Greyið litla Eygló :( Verður nú að láta þér batna fyrir stórafmælið.
Annars hlökkum við mikið til að hitta ykkur á laugardaginn, þetta verður örugglega svaka partí! :)