Nýttnýttkristín Jóna

Hey!!! vitiði hvað .........ég er búin að breyta um bloggHlæjandi 
ENdilega kíkið á það og ekki gleyma að kvitta fyrir ykkur.

www.123.is/kristinjona

kristín Jóna

Eygló vaknaði upp um miðnætti seinustu nótt og sofnaði ekki fyrr en kl 2.30 aftur, þetta er farið að verða pínku pirrandi, núna liggur hún inní rúmi, á að fara að sofa, en hún stendur á grenjinu núna. henni er greinilega eitthvað illa við rúmið sitt í augnablikinu.
Öll ráð vel þegin takkHlæjandi

Vinnudagurinn var ágætur, mér finnst ég samt aldrei vera að gera neitt á meðan hinar 2 eru alltaf að breyta einhverju og stússast helling. Mér finnst ég eiginlega bara vera fyrir ef ég reyni að veraeitthvað með. En það er svo sem í góðulagi á meðan er ég að aðstoða, lagatil og setja í þjófavarnir, mjög rólegt bara.

Ég sótti svo Eyglónna mína kl 4 hún var í góðu skapi að vanda.Nýjasta nýtt er það að þegar maður segir við hana "Eygló Syngja"  þá byrjað hún "lalalalalalala" voða gaman og klappar svo fyrir sjálfri sér eheheh. svo þegar líður á kvöldið verður hún pirruð og grenjar og grenjar, þá er hún auðvitað baraorðin þreytt, svo það er spurning hvort hún sofi nóg hjá DM égætti að prufa að láta hana leggja sig í kannski klukkustund eftir að hún kemur heim, og sjá hvort það gangi ekki betur. yess ég geri það.

Núna er ég að fara heim til Karenar að spila með henni og ásu. Ég var í einhverju letikasti, og ætlaði ekki að nenna, en svo kemst ása ekki annað kvöld þannig að ég ákvað bara að slá til og far að spila, það verður bara gaman.

Ég þarfsvo að fara að vinna á Sunnudaginn..... og eftir vinnuna förum við Eygló í afmæli til Nikolai.

Eygló er að springa á limminu og ég hef það ekki í mér að láta hana grenja lengur svo ég er þotin.

loksinsloksinskristín Jóna

Jæja Loksins bloggið komið í lag! Maður er búin að vera eitthvað hálf tómhentur á meðan bloggið lá niðrí!
En hvað ernú búið að ganga á síðan ég skrifaði seinast......hmm....Éger auðvitað búin að vera að vinna og veðrið er búið að vera brjálað! Ég fékk Boðsmiða á starfsmannakvöld hjá Hagkaupum  og starfsmannakvöldið fólst í því að í Hagkaup í smáralindinni var allt selt á afslætti frá kl 19.30-22.00. Ég dró mömmu með mér á þetta. Það var soldill mikill troðningur, eins og mátti búast við. Það var 40% afsláttur af öllum fatnaði og ég keypti mér 2 buxur og 1 bol. Mamma keypti sér 1 kápu svo verslaði ég bleyjur og eitthvað svoleiðis, nottla allt með afslætti. Sumir voru alveg með kúfullar körfur að versla fyrir mörg þúsund kr. En við sluppum svo til með ala röðina, það var einhver maður fyrir framan okkur með fulla körfu sem hleypti okkur fram fyrir sig. Svo við þurftum að bíða voða stutt.

Í gærkvöldi þurfti ég sov að fara á eitthvað "nýliðanámskeið" og ég var svoooooooooo ekki að nenna að fara  en ég lét mig nú hafa það, það voru mest svona 16 ára krakkar á þessu námkeiði ef ekki yngri! Allavega voru nokkrir strákar þarna sem voru varla búnir í mútum og höguðu sér alveg eins og smákrakkar í barnaskóla að pirra Kennarann! mjög Pirrandi! En leiðbeinandinn var samt mjög fínn, gaman að hlusta á hana. Hún var að segja okkur ýmiskonar þjófasögur eins og td ein sem skeði í smáralindinni þar sem maður með widescreen tv labbaði að einum starfsmanninum voðalega haltrandi og bað hann um að keyra tvið út í bíl fyrir sig. Að sjálfsögðu gerir starfsmaðurinn það , keyrir tvið út í bíl og setur það í skottið og veifar bless, þegar hann kemur aftur inn fattar hann auðvitað að maðurinn hafði auðvtiað ekkert borgað fyrir tvið og haf'ði haft starfsmanninn að algjöru fífli. ótrúlegt! Hún sagði okkur alskonar svona ótrúlegar sögur.
En svo fór ég nú heim og þar voru óli og Eygló sofandi saman uppí rúminu okkar. Ég ákvað nú að færa Eygló yfir í sitt rúm, en NEI þá vaknaði mín bara svona rosalega og sofnaði bara ekkert fyrr en klukkan 3 um nóttina. Við óli vorum orðin sooooldið pirruð.Ég vona bara að þessi nótt veri betri. Ég þarf allavega ekkert að færa hana neitt núna. En hún vaknar samt öruglega einvherntíman í nótt og heimtar að koma uppí.


Ég ætlaði að segja eitthvað meira sniðugt en ég man bara ekki hva það var í augnablikinu!

Ég man allavega það að hann Nikolai á afmæli ídag og óska ég honum og sollu og Hjalta til Hamingju með Daginn.

Við ætlum í afmæli til Hans á Sunnudaginn, ég þarf reyndar að vinna til kl 5 svo ég verð soldið sein. Það verður bara að hafa það.

Núna er ég að pæla í að fara að fá mér popp. namminamm:)

Afmælisveislurnar búnar....kristín Jóna

Jæja , seinni afmælisveislunnier lokið. ´Hún heppnaðist bara vel  og vil ég þakka fyrir okkur Eygló , það er líka allaf gaman þegar við komum svona mörg saman með börnin okkar!
En það var ss mikið fjör í afmælisveislunni, krakkar út um allt með tilheyrandi látum:)
Eygló fékk frábærar afmælisgjafir og erum við mjög ánægðar með þær:)

Ég fór síðan á djammið í gærkvöldi, það varmjög gaman, ég byrjaði á því að fara heim til sollu og Herdís kom líka, við fórum að spila eitthvað pókerspil, sem vareinum of flókið fyrir minn heila þá stundinaGlottandi En ég og solla og Hjalti röltum svo niðrí bæ og fórum hingað og þangað, fórum meiraðsegja inná á NASA þar sem voru tónleikar með sálinni, en við löbbuðum bara beint inn án þess að verameð miða og án þess að borga svo fegnum við meiraðsegja stimpil þegar við fórum út til að við kæmumst aftur inn! Mjög þægilegt ,þeir þurfa að halda svona ókeypis tónleika oftarUllandi
En ég fór svo að tygja mig heim, klukkan var orðin soldið margt ég fór í leigubílaröðina sem var heeeví löng ,ég stóð í röðinni alveg örugglega í klukkutíma! og varað dreeeepast úr kulda. En svo loksins kom að mér að fá leigubíl og ég labbaði í áttina að leigubílnum og kemur þá ekki einhver stelpa hlaupandi og ætlar bara að ræna bílnum mínum! Ég hélt nú ekki sko! Ég settistbara inn og sagði henni að ég ætlaði að taka þennan bílog hún skyldi bara drífa sig út, stelpan var bara með einvherja stæla og sagðist hafa verið í röðinni í 2 klukkutíma , semhún var ekki. Leigubísltjórinn keyrði útí kant til að reyna að ræða þetta, ég ætlaði sko ekki að gefast upp og láta stela mínum bíl,ég var búin að bíða alveg nógu lengi! Svo endaði það þannig að stelapn gafst upp og hunskaðist út.
Alveg óþolandi svona,maður er búinn aðvera heiðarlegur og bíða heillengi í röðinni og svo kemur bara eitthvað fólk og ryst svona fram fyrir mann, bílstjórinn var sko alveg sammála mér að þetta var bara pjúra dónaskapur!
En ég heldég nenni ekki aftur í bæinn á næstunni, þetta var alveg meira en nógBrosandi
En hér er allt í drasli ég nenni ekki að gera neitt! ætlum að hafa kjúllla í kvöldmat ég vona að hann verði eins góður og seinastUllandi

jæja
blessíbili

Aðeins 364 dagar í næsta afmæli :)kristín Jóna

Jæja, þá er frökenin loksins orðin 1s árs!  Það er búið að vera mikið að gera hjá mér þessa viku, Ég er búin að vera í vinnunni alla daga
auðvitað og eftir vinnu er ég búin að vera að þrífa og taka til og baka og svona.

En á sjálfum afmælisdeginum fór ég með Eygló í skoðun áður en ég fór í vinnuna, við áttum tíma kl 8.20 .hún var vigtuð 8860gr og 76 cm hún hefur greinilega tekið einhvern vaxtarkipp því í 10 mánaða skoðun var hún 72,5 cm þannig að hún hefur lengst alveg slatta! En hún fékk sprautu og var ekki sátt við það! Það kom líka læknir til að kíkja í eyrun, hann sá ekkert í eyrunum nema það var soldill mergur.
En jæja Eygló fór svo til DM og ég í vinnuna, ég er búin að vera eitthvað svo ónýt í vinnunni þessa viku, um leið ég ég kem byrja ég að geispa og verð ofur þreyttsvo fæ ég svima og verð mjög þyrst, veit ekki alveg hvað þetta er,en það er alltaf mjög þungt loft þarna inni, held það tengist því, ég þarf bara að vera duglegri við að fara og fá mér frískt loft!  Ég batna svo strax og ég er komin heim.
en já ég fór svo og sótti Eygló hjá DM kl 4 hún hafði fengið kórónu og súkkulaði köku hjá henni, hún var víst hæst ánægð með kökuna og hámaði hana í sig, litli sælgætisgrísinnminnHlæjandi Hún fékk svo 1 pakka þegar hún kom heim fráokkur foreldrunum.Ég fór svo að baka og gera fínt, því fjölskyldan var að koma um kvöldið,ég gerði einhvern voða rétt, sem var góður að gestann sögn (ég borða ekki svona sjálf) Habba kom svo líka með kökku sem var ofsalega góð. En Afmælisveislan heppnaðist mjög vel!
Í morgun gat ég svo mætt á réttum tíma í vinnunaen var samt alveg að leka niður... ég kláraði samtdaginn og þegar ég var búin að sækja Eygló mínafórum við til Karenar í smá heimsókn, Eygló og strákarnir voru soldið að leika sér og það er alltaf jafn mikið fjör í honum Elvari, bara gaman að honumBrosandi Karen var svo góð að lána okkur Bangsaform sem ég ætla að gera afmælisköku úr! Takk KarenKoss EN við fórum svo um 5 leytið og það varsko fljúgandi hálka á götunum. Það munaði engu að ég hefði runnið á staur áður en ég fór inní hringtorg! Hólýmólý Hvað mér brá! Allt í einu réði ég bara ekki við neitt, og bíllinn rann baraHissa En sem betur fer stoppaði hann rétt áður en hann lenti á staurnum. Ég bakaði svo skúffuna áðan ég heldþað hafi heppnast ágætlega!

Á morgun verður svo afmælisveisla nr 2 þá koma vinirnir og börnin þeirra. Ég á ennþá eftir að útrétta svolítið fyrir afmælisveisluna, það verður gert á morgun!

Jæja
þetta er komið gott
Hlakka til ða sjá ykkur á morgun!
bæbæ

Hólý mólý:Skristín Jóna

Ég er farin að hafa áhyggjur af því að Eyglóin mín sé með sveppó á kynfærunumFýldur Allavega hjálpar þetta krem sem ég var að bera á hana ekki mikið til, Við fórum þá í apótekið áðan og keyptum annað krem ´heitir Daktakort eða eitthvað.......En þetta eralveg hrikalega ljótt og sérstaklega á einum stað, hún er hreinlega bara að verða skinnlausGráta úff þetta hlýtur að vera hrikalega vont, en við förum í skoðun á Fimmtudaginn og þá læt ég lækninn kíkja á þetta. Svo var DM að segja mér að öll börnin hjá henni eru með Niðurganginn svo Eygló er ekki sú eina,ég hélt það nebnilega, var farin að hafa áhyggjur af henni þar sem hún er búin að vera með þetta í nokkra daga, en þetta er þá eitthvað sem er að ganga.

Var að vinna með einni konu í dag sem er yfirmaður yfir einhverju þarna (Svo margir yfirmenn að ég hef ekki lagt það á minnið ennþá hver er yfirmaður yfir hverju) En minn venjulegi yfirmaður var í fríi í dag Svo þessi stjórnaði úlpufærslum og svona. Þessi er nú alveg ágæt, En hún er bara svo æst eitthvað og hvöss að maður verður bara þvílíkt stressaður á aðvinna með henni. Maður hefur það á tilfinningunni að ef maður gerir ekki strax það sem hún biður um þá muni hún bara snappa! Svo segir hún aldrei , viltu eða geturu, bara gerðu þetta og gerðu hitt. Allavega þegar ég var búin að vinna með henni í smástund þá var ég farin að fá stressið í magann og fannst bara virkilega erfitt að vinna með henni.
En ég held nú samt að þetta sé ágæt kona , mér er allavega ekkert illa við hana.
Svo átti ég að mæta á einhvern nýliða fund í kvöld, sem ég var EKKI að nenna að mæta á , ég ætlaði bara að svíkjast undan og segjast hafa gleymt því, En sem betur fer var fundinum frestað þangað til einhverntíman seinnaHlæjandi


Þegar ég var ´búin að sækja Eygló í dag fórum við í smáralindina og ég var að reyna að finna eitthvað í afmælisgjöf handa henni, fann nú alveg eitthvað en ég er bara svo óákveðin eitthvað , langar að gefa henni eitthvað sérstakt, en samt eitthvað sem hún hefur gaman að.


Á morgun er DM í fríi frá 8-9 svo Eygló getur komið eftir kl 9 og þá verð ég bara aðeins of sein í vinnuna, það er alltí lagi.


Svo á fimmtudaginn fer Eygló mín í skoðun kl 8.20 þá verð ég líklegast aðeins of sein í vinnuna líka........það er alltílæ


jæja ég ætla ekki að hafaþetta lengra í bili..........

úfff æjæj....kristín Jóna

Eygló er búin að vera með niðurgang síðan í gærÓákveðinn en það er ekki það versta , heldur er þaðversta það að hún er svo brunnin á pjöllunni sinniGráta og henni er svo illt, hún grenjar bara og klemmir saman f´æturnar þegar ég ber á hana krem. 
Svo þegar við komum heim í dag þá setti ég áhana hellings krem ogleyfði henni sov að viðra rassinn, það kostaði auðvitað smá piss og líka smákúk á gólfGlottandi Eygló stóð hérna við sófan þegar það byrjaði allt í einu að renna piss, og mín varð ekkert smá hissa,leit niður til að gá hvað væri að gerast og leit sov aftur á mig og fór svo að grenjaBrosandi hehehe litla greyið.
En já ,maður er með svo lítið hjarta þegar kemur að litlu krílunum manns.

Vinnudagurinn var svo bara rólegur, varí allan dag að panta og panta ogpanta.
Við höfðum svo kjulla í matinn, hann var góðurHlæjandi So you think you can dance er núna í tviinu og það er spennóað venju..........
Svo ætla ég að fara að koma mér í rúmið svo að við Eygló getum nú vaknað á skikkanlegum tíma í fyrramálið

CHIAO BELLOS

aha újééé...........kristín Jóna

Fór í vinnuna mína í dag ,þessi dagur var soldið frábrugðinn öllum hinum vinnudögunum vegna þess að í dag var ég elst af stelpunum sem voru að vinna með mér.
Og þessum stelpum fannst greinilega að ég ætti að stjórna eitthvað , þannig að það var égsem sá um þetta allt saman......eða allt saman....það má nú deila um það, ég sendi stelpunar í mat og sá um símann og svona. Það var barafínt það var rólegt í dag, og svo fór ég bara heim kl 5. Heim í draslið mitt!

Við fengum okkur svo bara Kenny í kvöldmat nenntum ekki að elda neitt.

Svo er bara afmælið í þessari viku ..........ég er bara ekki að ná þessu Ullandi Duglega músin mín orðin eins árs! fjúff hvað tíminn líður!!!

En jæja þaðverður víst ekki lengra í bili.

Þangað til næst..........

veriði bless og ekkert stressGlottandi

ohhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhoooooooohhhhhhhhkristín Jóna

OOOOhhhhhhh ég er svo þreytt og með hausverkÓákveðinn ekkert gaman sko! Ég fór líka áðan í bíó með mömmu Heiðu og Berglindi á Mýrina, hún var bara þokkalega góð en sorgleg og ég kom þunglynd útaf henni............kannski ekki alveg en pínku sorgmædd, mér fannst líka skemmtilegra að lesa bókina.

Ég fór í morgun og sótti húfuna sem ég er búin að láta prjóna á Eygló með nafninu hennar. ég á ekki alveg nógu góða mynd enég ætla samt að setja eina inn:


Ég er mjögánægð með þessa húfu ég á eftir að taka betri mynd og senda konunni sem prjónaði hana.
En við EYgló fórum svo í heimsókn til mömmu og kíktum svo í eina kápubúð með mömmu, það voru bara svona kellingaföt þar enginföt sem égfílaði!  Pabbi hans óla kom svo og kíkti á okkur seinnipartinn og horfði á einn leik með óla.

Þegar ég komsvo úr bíó skrapp óli heim til vinar síns í smá öl. Ég fer svo að vinna á morgun sem ég er alls ekki að nenna að gera.......... verð víst að láta mig hafa það............
núna ætla ég í háttinn og reyna að ná þessum hausverk úr méráður en ég dey........

pirr PIRR pirrrrrrrrrrkristín Jóna

   ohhhhhh þvílíka ógeðslega veður!  alveg mega rigning og rokTornado Reyndar var það aðallega í götunni minni sem ég varnæstum druknuð í rigningunni og fokin um koll í morgun. um leið og ég var   komin til DM var veðrið allt öðruvisi........skrýtiðQuestion Mark

En svo þegar ég var búin að sækja Eyglónna mínaí dag og var á leiðinni heim, þá kemur svona einbreiður vegur, ef þið vitið hvað ég á við, bara einn bíll kemst í gegn í einu, well ég var að koma þar og sé að það kemur bíll á móti og ég ákveð bar aaðvera áundan og fer þess vegna út á miðja akgreinina svon til að sýna hinum bílnum það að ég ætlaði yfir, en neinei kellinginn bara ÆTLAR SÉR  yfir og keyrir bara áfram þó að ég var næstum komin inn á  og hún stoppar heldur ekkert heldur treður sér bara áfram ogþað munaði sko litlu að hún hefði farið utan í mig, hún varekkert að stoppa til að leyfa mér að bakka eða neitt, bara að kafna úr frekju,helvítis kellingin, Svona fólk sko.........á ekki til orð

Þetta minnti mig á það þegar ég lagði fyrir utan bónusvídjó um daginn og það var sko enginn bíll lagður nálægt mér, en svo kemur stelpa á bíl og hún leggur svo nálægtmér að hún kemst ekki út úr bílnum, hún er sko ekkert að bakka til að laga bílinn heldur lítur hún bara í hina áttina og þykist vera að gera eitthvað annað, um leiðog ég er búin að bakka fer hún út úr bílnum! Það var sko alvegómugulegt að laga bílinn! ég sá svo eftir því að hafa ekki bara litið í hina áttina eins oghún og beðið eftir aðhún myndi lagabílinn.

maður hugsar alltaf eftir á ohhhhhh ég hefði átt aðgera þetta eða hitt...... næst þegar einvher svínar svona á mig ætla ég að verða brjáluð og hana nú!!!!

En já nóg að kvörtunum í bili!
 Dagurinn í dag var hinn venjulegasti,vakna , vinna borða ,koma heim.

og þar hafiði það!

*Veif*



Auglýsing

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Textareitur

Höldum fast í það sem eigum við.
Þrátt fyrir allt, þá höfum við hvort annað.
Já, höldum fast í þennan góða dag,
í það sem þykir okkur best; hvort annað.
Hvort annað.

Könnun

Hvaða þáttur er skemmtilegastur?

Leit

Textareitur

Þú færð bros
frá mér í sérhvert sinn
þú lítur hingað inn,
þú ert meir’ en velkomin hér.
Þú færð mitt bros,
já, það er fyrirséð
og faðmlag fylgir með.
Síðan þegar ferð þú frá mér
þér fylgir bros.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins